Vetraríþróttamiðstöð Íslands var stofnuð á Akureyri með staðfestingu samstarfs milli
menntamálaráðuneytisins, Akureyrarbæjar, Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar
þann 18. mars 1995 sbr. reglugerð útgefinni af menntamálaráðherra þann sama dag.
Vetraríþróttamiðstöðinni og hlutverki hennar er svo lýst í reglugerðinni:
„Vetraríþróttamiðstöð Íslands, VMÍ, er þjónustustofnun sem hefur að megin verkefni að efla
vetraríþróttir, íþrótta
fræðslu og útivist og stuðla þannig að heilbrigðu lífi og heilsurækt meðal almennings, svo
sem skólafólks, fatlaðra og keppnis- og afreksfólks í íþróttum með hefðbundnar vetraríþróttir,
íþróttafræðslu og útivist að leiðarljósi"
Framkvæmdastjóri VMÍ er Guðmundur Karl Jónsson.
Heimilisfang VMÍ er:
Glerárgata 26
600 Akureyri
Sími: 460 1489 Fax: 460 1414
GSM: 860 4919
Ýmsar tímamótadagsetningar í sögu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands
| 17. ágúst 2008 | Fyrsta ráðstefna NASAA haldin á Akureyri. |
| 12. febrúar 2008 | Vetraríþróttanámskeið VMÍ og Íþróttasambands Íslands haldið í samvinnu við NCDS í Winter Park frá Colorado. |
| 16. janúar 2008 | Ný stjórn VMÍ tekur til starfa og skipuð til ársins 2012. |
| 10. janúar 2007 | Nýr snjótroðari, Pisten Bully PB300 tekinn í notkun í Hlíðarfjalli. |
| 19.desember 2005 | Snjóframleiðslukerfið í Hlíðarfjalli formlega tekið í notkun. |
| 11. ágúst 2005 | Skóflustunga tekin að snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli. |
| Maí 2005 | Kurling steinar afhentir í Skautahöllinni á Akureyri |
| Apríl 2005 | Áform kynnt varðandi snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli. |
| 15. janúar 2005 | Ný toglyfta tekin í notkun, Togbraut fyrir byrjendur. Með þessari lyftu og Töfrateppinu eru orðnar mjög góðar aðstæður í Hlíðarfjalli fyrir börn og byrjendur. |
| 10. janúar 2005 |
Ný barnalyfta tekin í notkun, Töfrateppið, færiband sem flytur fólk upp brekkuna. |
| Apríl 2004 | Jeannie Thoren, heimsþekktur skíðakennari, kemur til Akureyrar í annað sinn. |
| Mars 2004 | Kurling ísheffill afhentur í Skautahöllinni á Akureyri. |
| Mars 2004 | Kurlingsteinar afhentir í Skautahöllinni á Akureyri. |
| 5. desember 2003 | Nýr snjótroðari afhentur í Hlíðarfjalli ásamt hálfpípubúnaði. |
| 20. nóv. 2003 | Nýr íshefill afhentur í Skautahöllinni á Akureyri. |
| Október 2003 | Snjóframleiðsla möguleikar og tækifæri, skýrsla um snjóframleiðslu kynnt. |
| 18. mars 2003 | Samið um uppbyggingu VMÍ til ársins 2008. |
| Október 2002 | Framkvæmdir hefjast við ný bílastæði í Hlíðarfjalli. |
| Ágúst 2002 | Hlíðarfjallsvegur endurnýjaður. |
| 8. apríl 2002 | Jeannie Thoren, heimsþekktur skíðakennari, heldur námskeið á Akureyri. |
| 9. febrúar 2002 | Nýja stólalyftan vígð með formlegum hætti og gefið nafnið Fjarkinn. |
| 23. janúar 2002 | Nýja stólalyftan tekin í notkun. |
| 20. des. 2001 | Nýja stólalyftan afhent. |
| 26. október 2001 | Búið að reisa öll möstur fyrir nýju stólalyftuna. |
| 18. ágúst 2001 | Fyrsta skóflustunga að nýrri stólalyftu í Hlíðarfjalli. |
| 16. ágúst 2001 | Skíðavalsbraut við VMA kemst inn á skólasamning milli VMA og menntamálaráðuneytisins sem undirbúningsverkefni. |
| Ágúst 2001 | Kynnt áform um nýja stólalyftu í Hlíðarfjalli |
| 7. maí 2001 | Lögð fram skýrsla skipulagsnefndar VMÍ -Horft til framtíðar |
| 1. febrúar 2001 | Guðmundur Karl Jónsson tekur við sem framkvæmdastjóri Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. |
| 15. apríl 2000 | Stjórn VMÍ samþykkir að setja á stofn nefnd með fulltrúum frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Íþrótta og tómstundaráði Akureyrar og Vetraríþróttamiðstöð Íslands sem hugi að stefnumörkun og skipulagsmálum til framtíðar. |
| Mars 2000 | Callenge Aspen með kennslu og sýningu í Hlíðarfjalli fyrir vetraríþróttir fatlaðra. |
| 26. mars 2000 | Skautahöllun formlega tekin í notkun |
| 26. mars 2000 | Ný Strýta formlega vígð. |
| Mars og apríl 2000 | Vetraríþróttahátíð ÍSÍ var haldin á Akureyri.. VMÍ tók verulegan þátt í undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar sem var sú langumfangsmesta frá upphafi. |
| Desember 1999 | Viðurkenning frá FIS alþjóðaskíðasambandinu um úttekt á göngubrautum í Hlíðarfjalli. Þetta eru 7.5 og 5.0 km. brautir sem eru nú eru löglegar fyrir alþjóðakeppni í göngu. |
| 28. júní 1999 | Úttekt á brautum fyrir risasvig og brun í Hlíðarfjalli. |
| 22. júní 1999 | Fyrsta skóflustungan að nýju skautahöllinni tekin. |
| 15. júní 1999 | Bygging nýrrar Strýtu í Hlíðarfjalli hefst. |
| 10. apríl 1999 | Stj. Skíðasambands hvetur til áframhaldandi undirbúnings v/ skíðavalbrautar við
VMA. Tilkynnt um alútboð v/ yfirbyggingar yfir skautasvell SA á Akureyri. Þröstur Guðjónsson gaf skýrslu um námsdvöl í USA, þar sem hann sótti námskeið fyrir leiðbeinendur fatlaðra í vetraríþróttum í desember og janúar 98/99l. |
| 21. nóv. 1998 | Upplýst göngubraut tekin í notkun í Hlíðarfjalli. |
| 19. nóv. 1998 | Skautahöllin í Reykjavík skoðuð |
| 19. nóv. 1998 | Fundur stj. VMÍ í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal í Reykjavík: Fulltr. IF mætti á fundinn. Rætt um samstarf þess við VMÍ. Styrkveiting til Iþróttasambands fatlaðra v. námsferðar manns til að sækja námskeið um vetraríþróttir fatlaðra í USA. Steingrímur Birgisson tilnefndur flt. stj. VMÍ í verkefnislið fyrir byggingu Skautahallar á Akureyri. |
| 19. október 1998 | Fundur stj. VMÍ: Lögð fram hönnunarforsögn að skautahöll á Akureyri. Lögð fram skýrsla skíðavalsnefndar VMÍ um stofnun skíðavalbrautar við VMA á Akureyri. Kynntar spátölur um byggingu svifbrautar frá Skíðahótelinu upp á Hlíðarfjall. Bréf frá SRA þar sem kynntar eru hugmyndir ráðsins um byggingu nýrrar Strýtu 1999. |
| 18. ágúst 1998 | Guðmundur Karl Jónsson, sérfr. í gerð skíðasvæða og sölumaður fyrir snjógerðartæki kom frá USA til Akureyrar skv. beiðni og kynnti útbúnað v. snjógerðar og veitti ráðleggingar. Í framhaldi var undirbúið átak til að koma upp snjógerðarvél í Hlíðarfjalli en það mistókst, aðallega v. veðurs. Nokkur kostnaður en nokkuð til af búnaði sem ekki var notaður í þetta sinn. |
| 15. ágúst 1998 | Fulltrúi frá alþjóðaskíðasambandinu FIS tók út göngubrautir í Hlíðarfjalli. |
| 3.-6. apríl 1998 | Sýning VMÍ á ýmsum hjálpartækjum fyrir fatlaða til að stunda vetraríþróttir. (Í tengslum við Skíðamót Íslands) |
| 07. feb. 1998 | Samþykkt í stjórn VMÍ að leggja fram á næstu árum kr. 50 milljónir af væntanlegum fjárveitingum frá ríki og bæ, til yfirbyggingar skautasvells SA á Akureyri. |
| 15. nóv. 1997 | Fest kaup á sérhæfðum útbúnaði og hjálpartækjum til að auðvelda fötluðum að stunda vetraríþróttir. |
| 14. nóv. 1997 | Fundur VMÍ á Fiðlaranum, en þar fór þá fram ráðstefna á vegum VMÍ um vetraríþróttir. Ráðstefnan stóð yfir dagana 13. - 15. nóv. |
| 8. sept. 1997 | Tillaga samþykkt um fé til framkvæmda í Hlíðarfjalli á árunum 1998 - 2002 kr. 76 millj. |
| 11. apríl 1997 | Bláfjallasvæðið og skautahöll í Reykjavík skoðuð. |
| 11. apríl 1997 | Fundur í stjórn VMÍ í Skíðaskálanum í Hveradölum. Þar var m.a. lögð fram drög að samningi milli SA og Akureyrarbæjar um skautahöll, lögð fram drög að framkvæmdaáætlun fyrir uppbyggingu vetraríþróttamannvirkja á Akureyri 1997 -2002. |
| 23. febrúar 1997 | Samkomulag milli menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar um fjárframlög v. reksturs og uppbyggingar Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands undirritað á Hótel KEA. |
| 21. febrúar 1997 | Fyrsti fundur skíðavalnefndar. |
| 21. janúar 1997 | Sett á stofn nefnd um undirbúning að skíðavalbraut við VMA. |
| 16. des. 1996 | Rætt um drög að samkomulagi milli menntamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar um framlag ríkis og bæjar til reksturs og uppbyggingar VMÍ. |
| Október 1996 | Framkvæmdastjóri á vöru og tækjasýningu í Austurríki. |
| Ág.-okt.1996 | Gerðar tilraunir með að koma upp snjógerðarvél í Hlíðarfjalli. mistókst v. veðurs ofl. |
| 24. júlí 1996 | Fundur flt. menntamálarðuneytisins og stjórnarmanna VMÍ um málefni VMÍ. |
| 19. júlí 1996 | Veðurathugunarstöð flutt með þyrlu upp á Hlíðarfjall. Stöðin sett upp v. undirbúningsrannsókna fyrir byggingu svifbrautar upp á brún Hlíðarfjalls. |
| 16. júní 1996 | Fundur form. og varaform. VMÍ ásamt framkv.stj. um framkvæmda og kostnaðaráætlun VMÍ til næstu 5 ára. |
| 14. júní 1996 | Fundur stjórnarmanna VMÍ með forráðamönnum Skíðastaða og Skautafélags Akureyrar um áform þeirra í byggingarmálum. |
| 4. mars 1996 |
Stjórn VMÍ í skoðunarferð: Vetraríþróttamannvirki á Akureyri skoðuð. |
| 9. febrúar 1996 |
Ráðinn framkvæmdastjóri í hálft starf hjá VMÍ frá l. mars 96. |
| 2. október 1995 | Fyrsti stjórnarfundur VMÍ haldinn að Hótel KEA. |
| 18. mars 1995 | Staðfest samstarf menntamálaráðuneytis, Akureyrarbæjar, Íþrótta og Olympíusambands Íslands og Íþróttabandalags Akureyrar um Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) sbr. reglugerð útg. þann sama dag. |
| 6. janúar 1995 | Undirbúningsfundur um Vetraríþróttamiðstöð Íslands á Akureyri, að Hótel KEA með menntamálaráðherra. |




