Vetraríţróttamiđstöđ Íslands

Vetraríþróttamiðstöð Íslands

Nýjustu fréttir

Vel heppnuđ Vetraríţróttarhátíđ

Nú er vetraríþróttarhátíð ÍSÍ á Akureyri langt komin.  Skipulagðri dagskrá lauk í raun 21. mars en þó eru eftir 2 atburðir sem tengjast á hátíðinni.  Þeir eru: Sýning á Glerártorgi þar sem sýnd verða föt og búnaður íslenskra ólympíufara í gegnum tíðina og svo Andrésar Andar leikarnir.

Fjölmargir atburðir hafa verið á dagskrá VH2010 eða hátt í 30 atburðir.  Dagskrárliðir voru m.a. nokkur skíðamót, skíðanámskeið fyrir fatlaða, innanhús skíðagöngumót, snjóspyrnur á vélsléðum, Vetrarsport sýning á allskonar búnaði og tækjum, ískross, hestaíþróttamót, vetrarhlaup, bretta bigjump mót, kvennaganga Þórunnar Hyrnu, kynning og leikir í krullu, skemmtanir í skautahöllinni, o.fl.

Viljum við þakka öllum sem hafa komið að hátíðinni kærlega fyrir þeirra framlag og vel heppnaða hátið, þó hún sé ekki búin enn.


Sýning á Glerártorgi

Fyrirhuguð er sýning á Glerártorgi um páskana í tengslum við vetraríþróttarhátíð ÍSÍ.  Settur verður pallur með gínum sem klæðast munu fatnaði ólympíufara Íslands frá mismunandi tímum.  Sýningin mun standa yfir í rúma viku.  Nánari upplýsingar verða settar hér inná síðuna innan skamms.

Þeir sem eiga eða vita um fatnað ólympíufara okkar Íslendinga mega gjarnan hafa samband við Viðar hjá ÍSÍ í sima 8631399 eða á vidar@isi.is


Stjörnutölt

Stjörnutölt var haldið laugardaginn 20. mars og er óhætt að segja að það hafi verið frábær skemmtun. Sterkir hestar mættu til leiks og voru úrslitin æsispennandi. 

Barbara Wenzl og Dalur frá Háleggsstöðum kom sá og sigraði. Viðar Bragason og Von frá Syðra-Kolugili voru valin 5 hestur í úrslit af áheyrendum. Viðar og Von stóðu sig vel og höfnuðu í 5 sætinu.

Jakob Svavar sigraði stóðhestakeppnina á Al frá Lundum og kom Magnús Magnússon og Vafi frá Ysta-mói fast á hæla hans.

Úrslit í tölti

1. Barbara Wenzl - Dalur frá Háleggsstöðum 8,5
2. Jakob Svavar Sigurðsson - Árborg frá Miðey 7,67
3. Sölvi Sigurðsson - Glaður frá Grund 7,33
4. Sigurður Sigurðsson - Hugrún frá Syðra-Garðshorni
5. Viðar Bragason - Von frá Syðra Kollugili

Úrslit í stóðhestakeppni

1. Jakob Sigurðsson - Alur frá Lundum 7,43
2. Magnús Magnússon - Vafi frá Ysta-Mó 7,41
3. Björn Jónsson - Sindri frá Vatnsleysu 7,01
4. Hekla Katharina Kristinsdóttir - Gautrekur frá Torfastöðum
5. Sölvi Sigurðsson - Straumur frá Enni 6,60
6. Sigurður Sigurðsson - Spói frá Hrólfstaðafelli.


Frétt tekin af www.lettir.is


empty

Mynd augnabliksins

thtr5933.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 1971

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn